Gróðurinn og steinsteypan
Á göngu minni um suðræna bæinn minn Pézenas sé ég miklar andstæður ekki bara gamalt og nýtt sem kallast á heldur líka gróðurinn sem lætur ekki að stjórn og vex yfir veggi og upp úr gangstéttum. Það eru ekki bara hlaðnar ójafnar, gangstéttir sem þarf að vara sig á heldur líka ójöfnurnar sem eru af völdum róta trjánna sem föttuðu ekki að vaxa niður og leituðu óvart upp. Ég er stundum eins og með sjóriðu á göngu minni um götur bæjarins og lít stundum í óðagáti í kringum mig hvort einhver sé að horfa á þetta skrítna göngulag þegar ég fer skyndilega tvö skref til vinstri af því að undirlagið hallaði. Ég lofa að þetta er ekki rauðvíni um að kenna enda engir hádegisbarir opnir, ástæðan er bara tré að vaxa í vitlausa átt!
Mjúkt og hart
Húsin eru flest byggð úr kalksteini, þetta ljósa yfirbragð steinsins mýkir annars hart yfirborðið og viðarhurðir og málaðir gluggahlerarnir gefa húsunum glaðlegra yfirbragð. Ég tók nokkrar myndir sem sýna hurðirnar í eldri hluta bæjarins en erfiðara var að komast að nýrri hurðum þar sem í nýrri bæjarhlutanum tíðkast að hafa afgirta lóð fyrir framan hús en hliðin og girðingar yfirleitt of hátt til að ná að mynda útidyrahurðirnar!
Afgirt hús Ekkert sést í útidyrahurð Engin framgarður
Safn um hurðir! Hver hefði trúað því?
Hér í bæ eru ekki mörg söfn, þó er miðbærinn allur eiginlega safn þar sem svo margt athyglisvert er að skoða. Það er þó að finna Leikfangasafn og Hurðasafn……. bæði lokuð um þessar mundir svo ég gerði mér ferð til að taka sjálf myndir af hurðum sem mér fannst segja sögu, amk. sjónræna.
Eldgamalt og glænýtt Viðhaldinu ábótavant Gróðurinn skríður upp Framgarður Pípulagnir Íburður Hér er allt sjáanlegt Rafmagn og lagnir utan á Glæsilegar Nútíminn skríður inn Öllu glæsilegra vinstra megin við hurðina Lítill og stór Hurðin að húsinu mínu
Þú hefur glöggt auga fyrir umhverfinu kæra mágkona.
Svo gaman að lesa pistlana þína 🙂 Megi ævintýrið halda áfram!