29. september 2020 lagði ég land undir fót, í miðjum heimsfaraldri, og lét gamlan draum rætast um að flytjast til Frakklands. Aðdragandi að að slíkri ákvörðun er alltaf einhver og hér í byrjun þessa nýja tímabils í lífi mínu ætla ég að rekja það í stórum dráttum.
Aðstæður mínar hafa breyst mikið á undanförnum árum, 3 ár eru nú frá skilnaði eftir 30 ár í sambúð, heilsunni hafði hrakað undanfarin ár og á fyrsta ársfjórðungi þessa árs fór ég á örorkulífeyri. Astmi og gigt eiga heiðurinn af þeirri niðurstöðu, engin var jafn hissa og ég þegar læknirinn minn stakk upp á „ … er ekki komin tími á að við sækjum um örorku fyrir þig?“ Þetta var í desember og ég þurfti fram í janúar að melta stöðuna og ræða við dæturnar. En auðvitað var ekkert annað en að taka því og hefjast handa við að byggja mér framtíð í ljósi þessa nýja veruleika. Við hjónin, fyrrverandi, vorum ein þeirra fjölmörgu íslendinga sem misstum allt okkar, tvö fyrirtæki, einbýlishús, bíla og það allt, í hruninu og ég sat eftir með skuldabagga sem án efa, ásamt með samskiptaörðugleikum í hjónabandi, lagði sitt af mörkum til versnandi heilsu. Enginn þessara aðila hafði gengið svo langt að krefjast gjaldþrots hjá mér þó stefnurnar og árangurslausu fjárnámin væru orðin nokkur, minn fyrrverandi varð „heppnari“ og var snemma lýstur gjaldþrota og löngu orðin laus allra mála en ásókninni á mig linnti ekki þó allt væri löngu farið. Ég leitaði mér hjálpar í 3ja sinn frá hruni og loksins núna í vor þegar ég var bókstaflega komin á hnén var hægt að hjálpa mér og Umboðsmaður skuldara borgaði fyrir mig í gjaldþrot.
Og þannig var staðan í byrjun sumars, fráskilin, gjaldþrota öryrki á sjötugsaldri!
En ég ákvað að taka annan pól í hæðina og ég er nú frá og með þessu hausti 2020, hugguleg kona á góðum aldri með uppkomin börn, frí og frjáls og tek því sem koma skal með bros á vör og von í hjarta.
Frakkland
Af hverju Frakkland og Pezenas? Hefur einhver heyrt minnst á bæ með því nafni? Mér finnst Frakkland svo augljóslega æðislegt að ég skil ekki afhverju einhver ætti að spyrja „ afhverju Frakkland!“ Mínar ástæður eru ósköp draumkenndar og eiga rætur í rómantískum hugrenningum unglingsáranna, ég kom hingað fyrst 19 ára á frönskuskóla og var í nokkra vikur við Miðjarðarhafið og hef látið mig dreyma um flutning hingað allar götur síðan. Suður Frakkland hefur betra og hlýrra loftslag en við eigum að venjast heima á Fróni og ég er viss um að bæði astmi og gigt muni verða þolanlegra við að eiga heldur en heima. Einnig vona ég að blóðþrýstingurinn og kvíðinn minnki þegar ég sé að ég næ endum saman nokkuð áhyggjulaust sem er alls ekki raunin fyrir öryrkja á Íslandinu góða. Pezenas var svona Google dæmi, hvar fengi ég íbúð á leigu þar sem örorkulífeyririnn dygði og ég gæti átt í mig og á. Pezenas er vestarlega við Miðjarðarhafið og reyndar styttra fyrir mig að fara til t.d. Barcelona (á Spáni) en í austurátt til Nice, ég leitaði undanfarna mánuði að húsnæði á netinu en Nice og það svæði var dýrara svo ég endaði hér í bæ sem ég hafði aldrei heyrt á minnst og líst bara vel á mig.
Það sem ég ætla að gera
Í þessum skrifum mínum mun ég fara út og suður um hvaðeina sem grípur hugann, nútíð og fortíð, persónulegt og almennt. Mikið vona ég að einhverjir hafi gaman af og fylgi mér á ferðalaginu sem þetta líf er, kannski kem ég ykkur á óvart, kannski erum við eins og kannski erum við öll ferðalangar með ófár sögur í farteskinu og hér verða sagðar mínar.
Dugnaður hjá þér,gangi þér allt í haginn og gaman að fylgjast með dríf mig í eitthvað svona þegar ég hætti að vinna á næsta ári.
Elsku hugrakka Àsdìs mìn.
Gangi þêr vel með fyrsta kaflann i þessari nýju lìfsbòk þinni.
Verður spennandi að fylgjast með.
Takk Ásdís fyrir að deila og ég mun örugglega fylgjast með, þvi þetta er bjart og lofar góðu. Kveðja, Tóta
Vel skrifað kæra mágkona, gangi þér sem best í Frans. Hlakka til að fá frásagnir af lífinu þarna suðurfrá.
Mikið er gaman að fá að fylgjast með þér Ásdís og þetta verður alveg frábært! Bravó fyrir þér að taka málin í þínar hendur.
Varðandi frönskunámið þá má ég til með að mæla með fjarnáminu í Versló – já Verslunarskóla Íslands! – það er alveg sérlega ítarlegt og gott að læra svona “franska-íslenska” þetta getur þú sökkt þér í hvenær sem er dags og farið svo út á kaffihús og æft þig! –
Bon Courage !
Já mín kæra, maður velur sér viðhorf. Er glasið hálf fullt eða tómt. Spennandi tímar framundan hjá þér, laus við ok hversdagsins hér heima. Ég mun sko sannarlega fylgjast með ævintýrum þínum í France. Guð hvað væri skemmtilegt að sitja á góðri strönd með rautt í glasi og hlæja saman 🙂
Ég er verulega stollt af þér elsku Ásdis😘ég hugsa til þín og minnist góðu áranna okkar í LA❤️Gangi þér rosalega vel😘hver veit ef bráðum verður ferða fært að einn góðan veðurdag kíki ég á þig😉það vill svo til að suður Frakkland er í mjög miklu uppåhaldi hjå mér😘
Risa knús🥰
Oddny
Flott skrif hjá þér kæra frænka. Ég mun fylgjast með þér og vona að allt gangi þér í haginn og að heilsan muni batna í hlýrra loftslagi.
Hugrökk og dugleg ertu💪👍gangi þér sem allra best🙏🏻🌹🌹
Takk fyrir að fá að fylgjast með ævintýrinu þínu. Flott hjá þér að láta drauminn þinn rætast. Gangi þér allt í haginn 🌼
Dugleg ertu Ásdís og hugrökk, flott hjá þér að láta drauminn rætast. Gangi þér allt í haginn.
Gangi þér allt í haginn mín kæra. Ég tek ofan fyrir þér ađ þora þessu.
Þú ert hugrökk…..gangi þér allt í haginn
Takk mîn kæra, áfram þú.
Hugrökk ertu Ásdís mín, hlakka til að fylgjast með þér hér. Gangi þér allt í haginn 💐
Takk fyrir að deila þessari sögu með okkur. Finnst þú ótrúlega hugrökk að leggja land undir fót og hlakka til að fylgjast með þér í Frakklandi
Mér finnst þetta meiriháttar ákvörðun hjá þér og óska þér alls hins besta. Þú átt það svo sannarlega skilið. Hlakka til að fylgjast með þér hér á þessum vettvangi.🌹 Bonne chance et bonne santé!🇫🇷
Hlakka til að fylgjast með þér Ásdís, finnst þú algjör hetja að leggja af stað í þessa vegferð. Gangi þér áfram sem allra best.
Æðislegt hjá þér. Gaman að fá að fylgjast með þér. Ég dáist að þér og vildi gjarna gera það sama, en sennilega hef ég ekki sama kjarkinn, en þú ert frábær fyrirmynd. Gangi þér vel í þessu öllu. 🇫🇷
Frábært elsku Ásdís, að þú takir málin í þínar hendur. Geri mér vel grein fyrir að slíkt er ekki auðvelt og hugrekkið þarf að vera með í för. Gangi þér vel, mun svo sannarlega fylgjast með þér 🙏 Viva liberty 😊💜 kv, Anna Lóa
Kæra Ásdís, takk fyrir huglæga frásögn þína, ekki hafði ég hugmynd um erfiðleika og rússíbanareið. Gott að þú náðir fyrir hornið og til drauma landsins. Gangi þér allt í haginn, ég verð hér á vaktinni.
Kveðja
Engilbert
Hugrekki og ævintýri. Ástæða til að fylgjast með 😊