eru litir skugga, ljóss og lífs.
Þessir þrír frumlitir eru sterk samsetnig þegar þeir eru notaðir saman og engin tilviljum hvað þeir eru mikið notaðir þegar vekja skal athygli, í auglýsingum, kvikmyndum, tísku og umferðarmerkingum. Þeir eru reyndar sagðir sú litasamsetning sem á sér hliðstæða merkingu í öllum menningarheimum.
Litir og merking þeirra á sér djúpar rætur í menningu flestra þjóða, hér skal stiklað á stóru um merkingu lita á Vesturlöndum og hvaða persónuleika þeir endurspegla.
Svart
Svart er oft tengt sorg, myrkri og þunglyndi, en þar sem þorri kvenna klæðist svörtu flesta daga ársins skulum við gefa okkur að svart sé litur valds, skapandi hugsunar, fágunar og kynþokka sem flest okkar vilja tengja við. Þannig að ef uppáhaldsliturinn er svartur þá leitastu við að vera við stjórn amk. í eigin lífi, þú ert skapandi einstaklingur sem er óhræddur við að vera kynvera og þú leitar fágunar.
Hvítt
Hvítt tengjum við hreinleika, nýju upphafi (fæðingu) og sakleysis. Ef þú ert hrifin að hvítu ertu sögð skipulögð, sjálfstæð og rökvís. Einnig tengjum við rómantík og blúndur við hvíta litinn sem og umhyggju og friðsæld. Í seinni tíð hafa konur á vesturlöndum klæðst hvítu í pólitískum tilgangi, til að styðja við valdeflingu kvenna.
Rautt
Ef rautt er uppáhaldslitur hjá þér þá ertu líklega áræðin, atorkusöm og ástríðufull, jafnvel árásargjörn og ævintýragjörn, drifin áfram af ákafa.
Eða það segja sumar kenningar um merkingu litanna.
Fyrsta flíkin mín
……. sem ég valdi sjálf þ.e. Ég var trúlega um 8 ára þegar ég fann mína uppáhalds litasamsetningu, já einmitt svart, hvítt og rautt. Mamma hafði sent mig út af örkinni til að leita að skólapeysu fyrir haustið, ég átti síðan að segja henni hvað ég valdi og hún færi síðan til að ganga frá kaupunum.
Þetta var fyrir langa löngu á sjöunda áratugnum og við bjuggum í smábæ (Vestmannayjum) þar sem allir þekktu alla og lífið var einfalt og öruggt. Það voru ekki margar verslanir úr að velja en mamma sendi mig í verslunina Framtíðin en hún var nálægt matvörubúðinni hans pabba á Þingvöllum. Ég þekkti þessa leið mæta vel og oft hafði ég legið á gluggunum og skoðað úrvalið fyrir innan á leið minni til pabba.
Þetta var í fyrsta skipti sem ég hafði fengið að velja sjálf föt á mig og ég tók þessu verkefni af alvöru og áræðni. Mér leið eins og ég hefði stækkað heil ósköp og varð mörgum árum eldri, bakið beint og höfuðið borið hátt.
Mamma varð hissa svo ekki sé meira sagt og missti út úr sér eitthvað á þessa leið „ aldrei hefði ég valið þessa liti á þig“ en hún brosti líka svo broddinn tók af og ég átti nýja peysu. Peysunni fylgdi tilfinning um sjálfstæði og stolt, þarna hafði ég fengið að ráða og velja, alveg ein í fyrsta sinn, í hverju ég vildi vera.
Ég var alveg ómeðvituð um að þetta væri litasamsetning sem endurspeglaði, áræðni, skapandi hugsun og sjálfstæði. En þarna fékk ég að staðfesta eigin vilja og smekk sem kom síðan æ betur í ljós eftir því sem árin liðu að við mamma vorum sjaldnast sammála um liti og höfðum gjörólíkan fatastíl.
Sem yngsta barn og eina stelpan í fimm barna hópnum fann ég mig oft knúna til að vera hávær eða gera eitthvað til að sjást og láta vita af mér. Þessi litasamsetning var einmitt það, hávær sjálfstæðisyfirlýsing, hér er ég og takið eftir!
Áhrif lita
Það er gaman að velta fyrir sér áhrif lita á okkur og umhverfi okkar, afhverju veljum við þennan lit en ekki hinn. Ef við lítum í eigin barm og látum ekki strauma og stefnur yfirtaka smekk okkar, hvaða liti myndir þú velja á þig og þitt nærumhverfi. Áhrif tísku og vöruval verslana hefur kannski slævt innbyggða litaáttavitann okkar og við kaupum eins og hinir.
Ef það eru ung börn í þínu lífi gættu að þvi hvaða litum þau laðast að og leyfðu þeim að blómstra á þann hátt sem er þeim og okkur öllum eðlilegt.
Við tjáum okkur, sýnum valdastöðu okkar, segjum hver við erum með litum; í fatnaði, snyrtivörum, tattói, skarti osf.
Hefurðu hugleitt til að mynda hvaða liti þú velur þér þegar þú þarft að mæta á fund og vilt láta taka eftir þér, stjórna fundi, halda erindi? Eða þegar þú vilt mæta og láta lítið fyrir þér fara?
Það er gaman að lesa þetta og fróðlegt. Ég vil gjarnan fá tækifæri að lesa pistlana þína áfram.