Það rigndi smá í morgun, svona rétt nóg til að hreinsa loftið en ekki hundaskítinn á gangstéttunum! Þegar ég leit út um gluggann sá ég að bréfberinn var að bera út póstinn, í þetta sinn vel gallaður og á mótorhjóli og þar sem ég hafði pantað mér enskt tímarit leyfði ég mér að vona að kannski væri það komið svo ég lagði við hlustir og viti menn, eitthvað datt inn um bréfalúguna. Þetta yrði frábær dagur!
Verslunarferð
Það þarf að fylla á ísskápa á öllum heimilum, svona af og til og núna var þörf á því hjá þessum einhleyping svo ég skellti bakpokanum á bakið og rölti af stað í súpermarkaðinn sem er rúmlega korters labb. Það var spenna í loftinu, meiri umferð en ætla mætti fyrir miðjan dag í miðri viku og mér fannst allir vera að fara í sömu átt og ég. Carrefour heitir þessi súpermarkaður sem ég fer í og þetta er risakeðja með 1020 verslanir víðsvegar um Frakkland og stór er hann. Inni var margmenni og næstum allar innkaupakerrur teknar, hillur voru sumar hverjar óvenju tómlegar sér í lagi hillur þar sem klósetpappírinn er vanalega. Loks kveikti ég á perunni, fólk var að hamstra fyrir hugsanlegar lokanir! Macron forseti hafði boðað nýjar aðgerðir vegna Covid og ætlaði að kynna þær í sjónvarpsávarpi klukkan átta þetta kvöld. Ég stökk inn í andrúmsloftið og tók til við að byrgja mig upp af nauðsynlegu góðgæti. Þegar ég komst loksins út var komin löng biðröð fólks að komast inn til að versla.
Verðlag
Mér finnst gaman að fara í búðir og matvöruverslanir eru í sérstöku uppáhaldi, ásamt bókabúðum, garnverslunum og byggingavöruverslunum. Eitthvað held ég að það hljóti að tengjast áhuga mínum á að búa eitthvað til, elda mat, baka, prjóna, lesa bækur og tímarit og jafnvel að dytta að heima við. Það er því aldrei kvöð að þurfa að fara og kaupa í matinn og núna þegar ég er hér í Frakklandi, þar sem verð á matvöru er lægra en heima, þá er það enn meira gaman því ég þarf ekki að passa mig jafnmikið á að fara ekki yfir strikið í innkaupum. Hér er virðisauki á matvöru ekki nema 5,5% en það útskýrir samt ekki allan verðmun ekki að ég kunni skýringar aðrar, hér er hægt að halda úti dásamlegum kjötborðum, fiskborðum, ostaborðum osf. osf. Eitthvað hlýtur fólksfjöldinn þó að skipta máli þegar borin eru saman verð hér og í fámenninu heima og fjarlægð frá öðrum löndum kostar sitt. Þess vegna skil ég ekki af hverju við Íslendingar leggjum ekki allt kapp á að vera sjálfbær í matvælaframleiðslu og borða betur í takt við árstíðirnar og hvað ræktað er í nærumhverfinu.
Innkaupin
Ég set hér að gamni inn hvað ég verslaði í súpermarkaðnum í dag, eitt og annað frá klósetthreinsi til rauðvíns, naglaklippum til osta. Þetta kostaði mig 69,45 evrur eða 11.778 krónur, þannig að gengið á evru miðað við debetkortsgengið er 169 krónur rúmlega þó, alltof hátt gengi finnst mér! Þetta eru ósköp íslenskt kaup reyndar, ég er ekki komin nóg inn í franska hætti til að versla og borða það sama og innfæddir svo karfan í dag er án efa í dýrari kantinum og nokkrir hlutir innfluttir hér svo innkaupin eiga sjálfsagt eftir að „þroskast“ í franska átt þegar fram líða stundir. Samt stendur upp úr verðmunurinn á víni, ég keypti flösku af Moliere rauðvíni (hér er ansi margt kennt við hann, þennan Shakespeare Frakka eins og einhver sagði en sér pistill um það síðar) sem kostar aðeins 601 krónu, nei hættu nú! Þar sem þetta vín fæst trúlega ekki heima þá get ég nefnt hið Ítalska Piccini Chianti sem kostar hér 772 krónur en heima 1.989 krónur svona til að sýna alveg réttan samanburð. (Íslenska verðið fengið af vef ÁTVR). Svona mér til varnar að vera að kaupa flösku af rauðvíni á miðvikudegi þá hefðuð þið átt að sjá innkaupin hjá konunni á undan mér í röðinni, sú var með 9 eða 10 flöskur af missterku áfengi í körfunni hjá sér innan um matinn og dömubindinn og blómvöndinn og grænmetið, enda reyndist hún bresk 😉
Miðbæjarlíf
Hérna í miðbænum í Pezenas er fjöldinn allur af verslunum, dásamlegu litlum búðum með forvitnilegum varningi, listamenn og gallerí, matvörubúðir, bakarí, gjafavara, fatnaður og bara allt sem nöfnum tjáir að nefna og sérhæfing er lykilatriði. Kjötkaupmaður sem selur bara kjöt og örlítið af tengdum vörum, tóbaksverslun sem selur tóbak, sælgæti og gos, apotek, bakarí, dótabúð, speglabúð, osf. osf. Allt alveg einstaklega hrífandi og dásamlega miðbæjarlegt eins og flestir vilja hafa miðbæi í borgum og bæjum.
Úthverfabúðir
Lífrænn markaðar Allt ódýrt hér Sportvörur Allir þekkja þetta Ekkert á ensku! Benzínverð Sauma og garnbúð vefnaðarvara Metravara Vefnaðarvara Leður Allt til sauma Garn
Svo skreppur maður í úthverfin og þar er að finna stóru verslanirnar, ef ég labba áfram framhjá súpermarkaðnum þá blasir önnur mynd við, meira að segja McDonalds! Hér eru vöruhúsin sem merkilegt nokk sérhæfa sig líka, risastór verslun með Bio vörum sem eru lífrænar, stærðarinnar skóbúð með fjölbreytt úrval og loksins fann ég vefnaðarvörur og garn og það stóra! Og auðvitað verslaði ég garn í peysu og í sjal.
Lok, lok og læs
Það er svo það að frétta af áætluðum lokunum vegna Covid og hraðvaxandi útbreiðslu að Macron vill að maður haldi sig sem mest heima við nema brýna nauðsyn beri til, nauðsyn er þá ferð til læknis, að kaupa í matinn, út að labba með sjálfan sig eða hundinn eða jafnvel bæði, og svo ef þú ert í vinnu sem ekki er hægt að vinna heiman frá, skólum verður haldið opnum en allt fjör er slaufað af, barir og veitingastaðir oþh. verða að loka sem og svo margt annað, en eitt gera Frakkar öðruvísi og það er í anda skriffinnskunnar sem þeir eru frægir fyrir, maður þarf að bera á sér pappír eða hafa í símanum svokallað “attestation“ til að sanna útgönguerindi með persónuupplýsingum, erindi og tímasetningum. Við skulum sjá til, á morgun fáum við nánari útlistun á lokunum sem taka síðan gildi á föstudag 30.október og munu standa til 1.desember. Mér skilst líka að ferðir á milli bæja og héraða hér í Frakklandi í túristaleik séu ekki leyfðar. Svo það er bara að halda sig við nýju heimahagana og kannski fara og kaupa meira rauðvín 😊
Gaman að fylgjast með þér Ásdís mín og gangi þér vel. 😍😍😍😍
Takk Ásdís svo sannarlega gaman að fylgjast með þér tækla þetta nýja líf. Gangi þér sem allra best að tækla þessar lokanir.
Takk fyrir pistilinn gaman að lesa hann. Gangi þér vel í nýjum heimkynnum þínum og farðu vel með þig.🥰
Það fyrsta sem ég hugsa. Hún hefur dottið í lukkupottin ekkert smà flott vefnaðarvöruverslun miðað við verslanir hér heima. Yndislegt að fylgjast með þér knús á þig😘
Your comment is awaiting moderation. This is a preview, your comment will be visible after it has been approved.
Það fyrsta sem ég hugsa. Hún hefur dottið í lukkupottin ekkert smà flott vefnaðarvöruverslun miðað við verslanir hér heima. Yndislegt að fylgjast með þér knús á þig😘
Þegar ég sá að þú værir flutt til Frakklands fékk ég fiðring í magann því mig hefur sjálfa lengið langað til að gera það. Ég var í Nice í nokkra mánuði fyrir 35 árum að undirbúa mig undir nám í fatahönnun sem ég fór svo aldrei í. Nú er ég orðin öryrki og ylja mér við þann draum að fara aftur til Frakklands. Ég hef líka einstaklega mikinn áhuga á öllu skapandi og ekki síst textíl. Hlakka til að fylgjast með ævintýrum þínum. Hver veit nema ég feti í fótspor þín og skelli mér til Frakklands.
Yndislegt! Furðulegir en þú tæklar þetta með jákvæðni 😍
Frábærir pistlar hjá þér og gaman að fylgjast með lífinu í Frakklandi. Ég fylgist spennt með 😘🙋🏻♀️