Verandi í Frakklandi á Aðventunni þýðir bara eitt í mínum bókum, að smakka allt góðgætið sem ég kemst yfir!
Kóka Kóla eða sætabrauð?
Ég setti mér það markmið að smakka eitthvað nýtt (reyndar er allt nýtt fyrir mér enn sem komið er) í hverri viku og er það síður en svo erfitt, þó ég sé óttalegur gikkur, þoli ekki þetta og hitt, finnst eitt og annað vont……. S.s. matvönd myndi einhver segja en ég er að verða kjarkaðri með aldrinum og veit svo sem orðið hvað fer illa í mig. En ég neita að trúa að sætindi og sætabrauð sé bannvara, mér er alveg sama hvað fólk segir um sykur að hann sé útbreiddasta dópið osf. En ég hef tamið mér að semja við sjálfa mig, ég þessi mikla kókakóla stelpa samdi við við sjálfa mig að sleppa kókinu og fá sætabrauð eða súkkulaði nokkrum sinnum í viku í staðinn EN alls ekki alla daga. Það hefur gengið vel, er orðin kunnug bakaríunum og nóg er af þeim hér get ég sagt ykkur! Svo eru sælkera búðir alls staðar, jafnt í sykurvörum sem matargóðgæti því matargóðgæti framleitt af meistarahöndum er alveg þess virði að sleppa sætindunum fyrir, nema kannski súkkulaði molanum með myntuteinu eftir matinn, það þarf ekkert að semja það frá sér 😊
Sérverslanir
Ein verslun kom mér á óvart, ekki bara hve stór hún er og fallega inréttuð og svo ótrúlega fallega framsett góðgæti, því í henni fæst bara súkkulaði, smákökur og brjóstsykur. Ég fór þangað núna um helgina og ákvað að smakka nokkrar gerðir af smákökum, alveg æðislega góðar en ég er að uppgötva að aðal fítusinn við smákökur er ekki að borða mikið af þeim heldur að BAKA þær á aðventunni. Ég mun ekki baka fyrir þessi jól en ég sætti mig svo sem alveg við það fyrst ekkert af fólkinu mínu er til að smakka og stelast í þær, það verður bara næst.
Sérverslun með smákökur, súkkulaði og brjóstsykur Börn eru allsstaðar eins, mig langar svooo Sérversluni með smákökur, súkkulaði og brjóstsykur
Beint á móti þessari búð er önnur sérverslun með annarskonar góðgæti, allskonar afurðir úr ólívum, ólívur af öllum gerðum, olían af þeim líka og allra handa paste oþh. Einnig mjög flott innréttuð og fallega uppsett.
Ólífuola er ekki bara ólífuolía! Sérverslun með ólífur og vörur úr ólífum Nóg að gera
Áður hef ég tala um súkkulaði sérverslun með því skemmtilega nafni Malakoff https://blacksand.is/malakoff/
Vín er hjartans mál
Hér eru fallegar vínbúðir sem sérhæfa sig líka og þar er flest ósmakkað af minni hendi, ég bíð eftir ferðafrelsi og að fá til mín fjölskyldu og vini. Héraðið sem bærinn minn Pézenas tilheyrir er vínræktarhéraðið Languedoc Roussillon sem er stærsta vínræktarhérað Frakklands (350.000 hektarar) og ég datt strax inn á vín sem nefnt er í höfuðið á leikritaskáldinu Moliére sem ég smakkaði fyrst eftir að hafa keypt það í bakaríi! Ræktendurnir reka sérverslun undir þessu nafni og er hægt að mæta með plasttankinn að heiman og láta fylla á, eitthvað sem ég horfði með forundran á þegar ég kíkti þangað. Endilega kíkja á heimasíðu þeirra en þar er mikill fróðleikur um um franskt vín ofl. https://www.caves-moliere.fr/languedoc-roussillon.html
Petit Paté de Pézenas
Margir bæir státa af einhverju tilteknu góðgæti sem jafnvel er kennt við bæinn. Því er þannig háttað hér í Pézenas þó ekki sé það frönsk uppskrift í grunninn. Þeta er handgert lítið innbakað kindahakk í smjördeigi blandað sykri og sítrjónu, hljómar ekkert spennandi en er ansi ljúft á bragðið. Hér er you tube vídeo sem segir frá þessu og sýnir myndir af bænum mínum 😊 https://www.youtube.com/watch?v=VG0KA4TPuzs
Það var árið 1768 sem breskur lávarður, Robert Clive, síðar barón og landshöfðingi yfir Bengal, Indlandi dvaldi í nokkra mánuði sér til heilsubótar sem rekja má upphaf þessara litlu sætu lamkjötsbaka. Með honum kom indverskur kokkur sem bauð upp á þetta góðgæti í veislum sem lávarðurinn hélt fyrir heldri borgara svæðisins. Kokkurinn kenndi einum bakara kúnstina og uppskriftina og síðan eru liðin fjölmörg ár og núna nefnist þetta Petit paté de Pézenas og er best með hvítvíni eða rosé sem forréttur eða smáréttur. Bara alveg ágætt!
Þetta bakarí er búið að framleiða þetta í 3 kynslóðir Sæt lítil kjötbaka
Bakarí
Svo eru bakaríin ófá og góð, aðeins 4 slík í stuttri aðalgötu bæjarins, ég er búin að finna mér hvar besta croissant-ið og baguette-ið fæst sem og flottasta sætabrauðið og það er erfitt að labba framhjá.
Gjafavara er líka sæt, fyrir augað
En það er fleira sætt en sætabrauð, gjafavara og antík er hér í hverri búðinni á fætur annarri og það er ein lítil og sæt sem hefur heillað mig meira en margar aðrar, hún heitir Trois soeurs eða þrjár systur. Hér er heimasíðan þeirra http://troissoeurs.com/index.php
Eigendurnir eru sænsk hjón sem hafa búið hér á svæðinu í fjölmörg ár en allar vörurnar sem þau selja eru fluttar inn frá Svíþjóð! Fyrsta hugsunin mín var nú að það væri verið að sækja vatnið yfir lækinn, en vörurnar eru bæði nýjar og antík. Svo skemmtilegt hvernig þau velja inn og það var virkilega gaman að tala við þau á einhverskonar skandinavísku eins og við íslendingar gerum gjarnan 😊Vöruverðið er hagstætt og í þessu innliti fékk ég mér glös á fæti með lituðu gleri, 4 stk á 10 evrur finnst mér nú bara ok.
Glösin fínu Svo flott Kíkt á glugga
Held Pézenas sé fallegur bær og takk fyrir að kynna hann fyrir okkur :* Einbeita hugann við fegurðina, skynja hið jákvæða og njóta stundarinnar, gerir alla daga betri kæra skólasystir :* Njóttu og farðu vel með þig 😀
Vá Hvað ég væri til í að koma með þér í búðarráp 🙂
ó já
komdu fagnandi 🙂