Það má vel vera að veturinn sé búinn en biðin ekki alveg, því miður.
Ég flutti hingað til Pézenas fyrir nkl. 9 mánuðum síðan, heil meðganga liðin og við sem höfum gengið með barn vitum hvað þeir eru langir! Fyrstu mánuðirnir, eins og á meðgöngu, eru fullir spennu, tilhlökkun og skipulagi um allt þetta góða og frábæra sem framundan er. En svo líða mánuðirnir einn af öðrum og stundum, stundum er eins og ekkert sé að gerast og allt sé of erfitt og þetta verður alveg hryllingur, hvernig á ég að geta staðið mig sem ekkert kann og á ekkert nema drauminn um nýtt upphaf og bjarta framtíð en, en, og, og. En maður er kominn á staðinn, barnið er fætt í þessari samlíkingu, og við taka meiri áhyggjur, mun ég standa mig, verður þetta eitthvað sem ég get verið stolt af. Hvað í andsk. er ég að gera hér????? Sjá hér fyrsta pistilinn í ferðinni https://blacksand.is/fitjad-upp-a-ny/
Svona er þetta búið að vera hjá mér, ég flaug með galopin augun beint í óvissuna og lockdown af Covid völdum og einmanaleikinn bankaði oft upp á. Alein á stað sem ég hef aldrei komið á, aldrei heyrt um, fann hann á netinu og verðið var rétt svo ég bókaði gistingu í svokallaðri „holiday let“ en til öryggis þá hringdi ég nú í fyrirtækið sem er umsjónaraðili og sá á netinu að það er rekið af breskum hjónum. Sjá hér https://www.longtermrentalsinfrance.com/ Allt reyndist eins og var lofað og þau voru og eru til og ekkert svindl þar á ferð! Ég leigði hjá þeim íbúð með öllu, svona Airbnb dæmi sjálfsagt, allt til alls, meira að segja flaska af rósavíni og önnur af vatni í ísskápnum þegar ég mætti.
Skoðunarferðirnar urðu ansi snubbóttar því Macron og félagar kusu að skella öllu í lás hvað eftir annað vegna óværunnar stórkostlegu og fordæmalausu. Eins gott að hafa netið til að fylgjast með og franskar sjónvarpsstöð sem sjónvarpar líka á ensku svo þessi kona var nú nokkurn veginn með allt á hreinu. Svo það var maski, spritt og það sem verst var, lítil útivera og ekkert flakk til að skjótast í dagsferðir hingað og þangað eins og hugur minn stóð til. Íbúðin sem ég leigði var í nokkurra alda gömlu húsi sem þrátt fyrir miklar endurbætur og nútíma pípulagnir, rafmagn, net og mikinn sjarma, hafði ekkert útisvæði sem tilheyrði íbúðinni og alveg stórmerkilegt að ég skyldi halda sönsum í allri þessari inniveru, alein!
Myndirnar hér að neðan eru úr elsta hluta bæjarins og ég bjó í efstu íbúðinni í húsinu yfir brúnni, mjög brattar tröppurnar þar innanhúss! En ég hafði það mjöf kósí í “holiday let” íbúðinni.
Svo kom að því að fara að ákveða sig, ætlaði ég að vera eða fara?
Heim var og er hætt að vera valmöguleiki, ég er öryrki og eignalaus öryrki hefur það skítt á Íslandi, á leigumarkaði, bíllaus með matvælaverðið eins og það er að ekki sé minnst á veðrið fyrir lungnasjúkling, nei ég er í sjálfskipaðri útlegð og kem ekki heim fyrr en tja? Einnig væri Svíþjóð valmöguleiki því ein dóttir mín býr þar kannski bara næst. Hér get ég lifað af strípuðum öryrkjabótum, leigan og matvælaverð er allt hagstæðara þó vissulega ekki jafn ódýrt hér og á Spáni og í Portúgal, ég þarf að passa aurinn áfram en er fyrir löngu orðin vön því. Mig langaði til Frakklands og hana nú þá er bara að láta það ganga! Svo ég fór að taka skrefin til langdvalar…………..
Fyrst var að komast inn í heilbrigðiskerfið, ég fór að heiman með Evropska sjúkrakortið en það greiðir nú ekkert niður, bara sannar að ég er lögleg einhversstaðar og má alveg vera gestur í Frakklandi. Tryggingastofnn segir manni að ákveða sig innan 6 mánaða annars falla alla bætur niður og mér sagt að ég yrði að skrá mig til heimilis þar sem ég byggi. Þá fór eitt og annað að vandast, ekki mátti ég skrá mig til lögheimilis í „holiday let“ og ekki gat ég stofnað franskan bankareikning án þess að geta sannað búsetu og ekki fékk ég leigt á almennum markaði án þess að sanna franskra búsetu, hafa franskan bankareikning og tímabundinn leigusamningur og íslensku bankareikningur var ekki nóg.
Svo var að finna sér heimilislækni og það gekk sjá hér https://blacksand.is/franskan-er-ekkert-grin/ Svo var að leita að íbúð í langtímaleigu en þá kom á daginn að ekki væri nóg að ég hefði ekki franskan bankareikning ó nei! Borgar þú skatta í Frakklandi var spurt, nei ég borga skatta á Íslandi þaðan sem ég hef tekjur. Allar hurðir skelltust aftur, hvað nú?
Ég fór að spyrjast fyrir á facebook hóp íslendinga í Frakklandi, og komst í samband við íslensk /franska listakonu sem í góðu spjalli gat gefið mér eitt ráð sem kom mér yfir fyrsta þröskuldinn en það var að opna franskan bankareikning á netinu og það gekk ég var komin með svona einfaldan reikning með inn og útgreiðslur sem ég gat þá vísað í. Því ég komst yfir fyrsta þröskuldinn í heilbrigðiskerfinu með svokölluðu S1 eyðublaði frá Sjúkratryggingum heima og þegar ég þurfti til læknis hér og að kaupa lyf þá lagði ég út fyrir allri upphæðinni en gat nú sótt um endurgreiðslu sem var svo greidd inn á þennan franska reikning, frábært því endurgreiðsla opinbera kerfisins er allt að 70%.
Svo var að komast inn í skattkerfið því yfirvöld heima sögðu mér að fyrst ég væri nú með lögheimili erlendis þá yrði ég nú að ganga alla leið og gefa þar til bærum yfirvöldum grein fyrir mér og tekjum mínum. Ég hafði nú lesið einhversstaðar að tekjur sem maður fengi frá hinu opinbera ætti að skattleggja í því ríki en það var minn misskilningur hvað Tryggingastofnun varðar ég hélt hún væri „hið opinbera“ en sei sei nei þannig að frá og með 1.sta maí á ég að greiða skatt til franskra yfirvalda af öryrkjabótum frá Tr og öryrkjabótum frá VR en svo á ég nokkra þúsundkalla á mánuði frá LSR og það eru einu íslensku skattgreiðslurnar því LSR telst vera hið opinbera. Ég fékk mjög góð svör og ráð frá íslenska skattinum og er alsæl með þá þjónustu en líklega verður þetta einhver steypa hjá mér og trúlega verður þetta skrautlegt næsta árið þegar ég skila inn fyrstu frönsku skattskýrslunni því ég er bara komin með bráðabirgðanúmer hjá skattinum hér svo ég greiði enn allan skatt til Íslands svo það verður eitthvað þegar það verður allt gert upp og líkur á tvísköttun um tíma sem eru algengir „flutningsverkir“ er mér tjáð.
Að leita langt yfir skammt
Áfram hélt leitin að langtímaleiguíbúð með útisvæði, sturtu og helst parketi og svo langaði mig líka að fara nær sjónum vildi fá sjávarlykt …….. Ekki gekk það með sjóinn en íbúð, já hún fannst 😊 Og reyndist bara í 5 mínútna göngufjarlægð frá fyrstu íbúðinni svo það var ekkert mál að rölta á milli með ferðatöskurnar. Hérna eru fasteignasalar oft leigusalar líka og ég var kominn í samband við eina skrifstofu sem var með tvær íbúðir sem litu vel út á myndum og ég fékk meira að segja að skoða aðra þeirra strax. Reyndar var ég búin að hringja og senda e-mail á fjölda aðila og spyrjast fyrir um íbúðir sem ég fann á leigulistum á netinu, enginn vildi þessa íslensku konu sem borgaði ekki skatt í réttu landi, ég náði að fá að skoða tvær íbúðir en var ekki valin sem hæfur leigjandi því ég hafði ekki réttu gögnin. Einnig var ég spurð um staðfest yfirlit skattyfirvalda um tekjur mínar og hvaðan þær kæmu og fleira og fleira sem íslenskt konugrey hafði ekki haft hugmyndaflug að hafa undir höndum.
En nú er ég komin með flesta pappíra sem þarf, allskonar vottorð frá fæðingarvottorði til tekjuyfirlits og hvaðeina sem frönskum skriffinnum finnst við hæfi að biðja um.
Þegar maður leigir hér til langframa þá er íbúðin tóm, eðlilega en aðeins meira tóm en maður á að venjast af leigumarkaði á Íslandi. Skápar og aðrar innréttingar geta verið af skornum skammti, ég var heppin fékk íbúð með fataskáp í svefnherbergi og innréttingu á baði og í eldhúsi en enginn bakarofn bara gashella. Svo nú var að fara að kaupa allt sem til þarf til að hefja búskap og þá meina ég allt! Smáaur hafði ég enn frá því að hafa selt eigur mínar fyrir slikk áður en ég fór út, þó leigi ég geymslu heima undir eitt og annað sem ég vil eiga, einnig átti ég endurgreiðslu vegna leigutryggingar heima. Þar hafði ég þurft að leggja fram tryggingu sem samsvaraði 3 mánaða leigu en hér lagði ég fram 1 mánuð til eiganda húsnæðisins sem tryggingu og fasteigna/leigusalinn fékk sem samsvaraði 1 mánaðar leigu fyrir sína þjónustu en þar sem ég leigi núna 70 fm þriggja herbergja íbúð á leiguverði sem nemur um 2/3 af leiguverði 60 fm 2 herbergja íbúðarinnar sem ég leigði á Selfossi s.l 3 ár áður en ég flutti út þá hef ég getað keypt mér eitt og annað til heimilisins. Fyrst var að kaupa sér rúm og ísskáp, allir vegir færir með þau tvö innanhúss 😊
Ekki er það glæsilegt að utan hjá mér! Jarðhæð séð inn í aukaherbergið og upp Horft út á pall frá stofu Séð úr stofu í eldhús og stigann niður
Auðvitað gekk það ekki eins og í sögu!
Ég fékk íbúðina afhenta 15. Apríl en hafði greitt fyrir hinn staðinn út apríl og taldi að þetta myndi smella saman, ekki þorði ég að kaupa mér neitt á netinu fyrr en ég væri komin með lykla að nýrri íbúð því ég hefði ekki getað geymt neitt í fyrstu íbúðinni. Ekki komst maður í búðir því yfirvöld töldu að sérverslanir væru smitstaðir en ekkert mál var að komast í matvörubúðir og á útimarkað með matvöru. Svo netið var eina leiðin og ekkert mál ég pantaði rúm og ísskáp í fyrstu og ísskápurinn kom á eðlilegum tíma en ekkert bólaði á rúminu, ég flutt og hvar átti ég að sofa? Ég átti jógadýnu og teppi og var búin að kaupa sæng og kodda áður svo þannig svaf ég fyrstu vikurnar, á jógadýnu með handklæði og teppi undir mér. Svo sem allt í lagi, verra var að standa upp af gólfinu, stoðverkir gerðu sterklega vart við sig. Svo opnaðist nú eitthvað og ég gat pantað mér sólbekk á Amazon sem kom fljótt og þannig svaf ég næstu vikur eftir það, Svo pantaði ég hægindastól og fallegan 60 cm breiðan bekk sem ég hugsa sem nokkurskonar sófaborð með bakka undir drykki oþh. Stóllinn er ekki kominn enn en á bekknum svaf ég í um það bil viku og það reyndist vera besta fletið, bólstrað og ekkert mál að fara framúr. Loksins, 24. Júní, kom rúmið sem ég hafði pantað og greitt að fullu fyrir þann 12.apríl og ég er mjög stolt af sjálfri mér fyrir að hafa ekki bara borið það upp um eina hæð heldur sett það saman alein 63 ára gamli öryrkinn, já nú hefðu foreldrarnir orðið stoltir af stelpunni sinni. Fallega nýja rúmið var svona lengi á leiðinni til mín af því að ég pantaði ekki bara heimsendingu heldur samsetningu í svefnherberginu og eftir að flutnings og samsetningaaðilar höfðu svikið mig margoft þá loksins gaf söluaðilinn sig og sendi annað rúm af stað með öðrum flutningsaðilum og bara svokallaða standard þjónustu, við útidyrnar. Svo er bara að venjast nýrri dýnu 😉
Á gólfinu Rauður bólstraður 60cm breiður bekkur Rúm fyrir drottninguna mig
Lífið heldur áfram
Eftir að hafa fengið að skoða íbúðina sem ég bý núna í gáfu eigendur hennar grænt ljós á mig sem nýjan leigutaka. Það er fjölskylda sem á húsið og reka þau fyrirtæki/verkstæði á jarðhæðinni og er íbúðin sem ég er í þar fyrir ofan og eina íbúðin í húsinu. Þetta er indælisfólk sem eru öll búin að koma og „skoða“ mig og eru öll að vilja gerð að aðstoða þessa íslensku konu sem á í vandræðum með að halda uppi samræðum á frönsku (því ekkert námskeið hef ég komist á enn) og þau tala ekki annað! Þegar ísskápurinn kom þá reyndist hann opnast í vitlausa átt og ekkert átti ég skrúfjárnið, svo ég trítlaði niður og hitti á soninn sem lánaði mér skrúfjárn en ekki dugði það til því það voru tvennskonar skrúfur! Svo þegar ég náði á honum næst þá kom hann upp með mér og bara reddaði þessu fyrir mig 😊 Hann fékk nú nett áfall að sjá að engin væru húsgögnin utan einn plaststól og fleti á gólfi, hann vildi endilega lána mér dýnu en nei nei þetta er allt í lagi, rúmið hlýtur að fara að koma. Viltu ekki að ég láni þér sjónvarp, nei nei ég er með tölvuna svo ég þarf ekkert meir, strax. Heyrðu ég kem nú með bakararofn handa þér, þetta gengur ekki! Fyrri leigjendur vildu frekar nota sinn eiginn svo við settum þennan sem var í geymslu. OK fyrst þú átt hann til ok sagði ég og brosti út að eyrum. Hann kom aftur með ofn og rafvirkja en ofninn reyndist ónýtur, ok þá ég yppti öxlum og sagði bara pas de problem, ekkert mál. En nei hann var ákveðinn og sagðist myndi kaupa nýjan og koma með hann eftir helgi! Ég alsæl með það en strax næsta morgun kom hann með nýjan ofn og setti rafvirkjann sinn í málið. Fínn sparnaður fyrir mig 😊
Þetta ryðgaða borð nýttist,var á pallinum Ég málaði blánn vegg í svefnherberginu Þarf að lappa upp á útlitið hér Pallurinn þurfti upplyftingu og þá er að mála Eitt blóm breytir þessari íbúð í heimili Auðvitað fagnaði ég flutningi með blómum og víni
Og áfram heldur lífið ……….
Þegar ég var nýflutt hvarf ruslatunnan, henni hafði hreinlega verið stolið! Ótrúlegt ekki satt? Hér er rusl flokkað og ég hef yfir 3 ruslatunnum að ráða, eina með gulu loki sem ég set endurvinnanlegar umbúðir í plast og pappír t.d. svo er appelsínugul undir lífrænan úrgang og almennt heimilissorp fer í þessa með græna lokinu. Svo eru víða gámar sem taka við gleri. Þetta er barasta frábært en kostar og einhver hefur séð sér leik á borði og stolið þessari með græna lokinu frá húsveggnum, ekki tímt að kaupa sér aðra fyrst hann hefur haft svona mikið drasl að henda. Svo ég sendi nokkrar kvartanir til eiganda og til fasteignasalans auk þess að ég sendi beiðni beint á sorphirðufélagið en nei nei þetta var í mínum höndum þ.e. að fara á lögreglustöðina og gefa skýrslu um stolna ruslatunnu, ég átti nú ekki annað eftir hélt ég! Djís vesen, að fara á löggustöð vá mér leist bara ekkert á það, en til að klára málið þá varð ég að fara enda komin með samviskubit yfir að lauma mínu rusli í annarra manna tunnur. Svo eins og margt annað þá var þetta ekkert mál þegar ég var kominn á staðinn og með vottorð um stolna tunnu gat málið haldið áfram og ný tunna kom í morgun og ekkert þarf að greiða fyrir, tryggingar sjá um það. 😊
Já hraðinn er ekki mikill á skriffinnskunni
Ég lagði inn S1 vottorð frá Sjúkra heima á Íslandi þann 29.desember þegar ég hafði ákveðið að dvelja í Frakklandi áfram, og liðu nákvæmlega 6 mánuðir þar til allt er komið í gegn ég fékk í dag 28. Júní með póstinum mitt eigið Carte Vitale, kortið sem tryggir mér fullt aðgengi í franska heilbrigðiskerfinu, frábært, alveg æði! Mér var sagt í upphafi að þetta tæki að jafnaði 3-6 mánuði svo ég var ekki svikin, loforðið stóðst 😊 Ég er ánægð með minn heimilislækni hana Láru hún hefur reyndar eitthvað verið að skipta sér af lyfjunum sem ég er búin að vera á undanfarin ár og hún er búin að senda mig í hinar og þessar rannsóknir til að meta betur ástandið á mér og leiðir til lækningar. Ég er búin að fara í skanna þar sem brjósthol var rannsakað og ég búin að fara til hjartalæknis og hef verið hjá indælis sjúkraþjálfara henni Emmu tvisvar í viku s.l. 2 mánuði og henni er að takast að gera mig verkjalausa svei mér þá. Ég labba hér um allar trissur næ að jafnaði um 28 klst í labbi á mánuði og er það vel. En ekkert læknar astmann hann hefur sinn gang og lungun eru eitthvað að missa getuna á að þenjast eðlilega en þetta er líka slæmur astmi sem gerði mig að öryrkja svo við hverju er að búast. En það veit ég fyrir víst að útivistin og daglegu göngutúrarnir hafa gert mér gott og ekki væri ég svona mikið úti að labba í kuldanum heima því kuldi fer illa í mín öndunarfæri. Svo hefur stressið minnkað það mikið, enda næ ég endum saman hér, að ég er hætt á öðru blóðþrýsingslyfinu sem er frábært. Svo er bara lungnalæknirinn næstur en þar var biðlisti að komast að, og tannlækni þarf ég að finna mér, já já viðhaldið er ansi fyrirferðamikið í lífinu þessi misserin hjá mér en alltaf betra þegar vélin gengur eins og smurð og hægt að beina athygli sinni að öðru.
En eins og ég sagði áður, þá er almenn niðurgreiðsla í heilbrigðiskerfinu hér allt að 70% sem er frábært en hér er líka annað sem er öðruvísi en heima og það er að ég gat keypt mér tryggingu ekki bara skyldutryggingu leigutaka eins og ég gerði, nei nei svona heilsutryggingu sem greiðir niður að mestu það sem út af stendur þegar hið opinbera er búið að greiða niður. Sem þýðir að ég er að borga rúmar 50 evrur á mánuði en fæ nánast fría heilbrigðisþjónustu í staðinn, ekki bara lækniskostnað, rannsóknir og lyf, heldur gleraugu, tannlækna, sjúkraþjálfun, sjúkrahúslegu og ég veit ekki hvað. Það kemur sér vel fyrir mig sem þarf það mikla þjónustu að jafnaði að það borgar sig að kaupa þessa tryggingu að ekki sé minnst á ef eitthvað stórt kæmi upp á, frekar frábært bara. Sjúklingurinn þarf sem sagt ekki að hugsa sig um áður en hann fer til læknis eða þarf að mæta auknum útgjöldum heilsu sinnar vegna hann hefur efni á því hér, og afleiðingin betra eftirlit með heilsunni og minna stress.
Hreiðurgerðin og upplifunin er nú loksins komin af stað eftir þessi vandræði, er ekki meira varið í það sem erfitt er að fá?
Ég á eftir að segja ykkur frá svo mörgu, loksins þegar ég fór að ferðast úr stað og kíkja á nærliggjandi bæi og svo eru loksins listasöfnin opin,svo af mörgu er að taka. Ég held áfram að gera mér notalegt hreiður hér í nýju íbúðinni, rækta blóm og krydd á pallinum, kaupi mér eitt og eitt húsgagn. Reyndar bilaði loftkælingin hér um fyrstu stórhitahelgina þegar hitinn náði 37 gráðum og tók það 2 vikur að bjarga því því það þurfti að panta nýja, hin lét bara ekki gera við sig! Brúnin léttist á mér eftir að rúmið kom og núna þegar loftræstingin er komin í lag þá er manni ekkert að vanbúnaði!
Það er fallegt í Pézenas, þetta er steinsnar frá miðbænum Hvað er franskara en Espadrillur og maskari frá YSL
Skemmtilegur lestur mamma! ❤️
Frábær lesning elsku vinkona. Það fyrsta sem kemur upp í huga mér er “Þú ert hetja”. Sá einstaklingur sem gengur í gegnum þessa reynslu sem þú ert að ganga í gengum kemur bara sem sterkari og ánægðari manneskja út. Kannksi ekki alveg sú sama en örugglega þroskaðri og með betri sýn á lífið. Þú ert bara mögnuð og haltu áfram á þessari þroskabraut. Kannski var þetta verkefni það verkefni sem þú þurftir að klára til að geta tekið á við nýtt og betra upphaf. Læra að sleppa til að hleypa nýju að.
Ótrúleg lesning! Þú ert frábær ♥️♥️
Vikrilega gaman að sjá hvað þú plumar þig vel – kannast við nánast alla þessa ferla sem þú ert að ganga í gegnum – lítið breyst í frönsku skriffinskunni í 35 ár. Frábær ákvörðun hjá þér – þú átt ekki eftir að sjá eftir þessu – Pézenas og umhverfi er dásamlega fallegt og stutt niður á strönd. Njóttu lífisins í botn – knúz
Dugnaðurinn og þrautseigan í þér er ótrúleg Njóttu þín
Gaf mér loksins tíma til að fara í gegnum allan pistilinn þinn Ásdís mín. Góður pistill og vel skrifað. Þú ert nagli mín kæra 🤩 Gangi þér vel áfram því þú ert svo sannarlega að gera vel. Hlakka til næsta pistils.