Handprjónaðar kápur eða síðar jakkapeysur eru ekki verkefni sem maður hristir fram úr erminni á einni kvöldstund. Sá tími sem það tekur að prjóna sér eina slíka er alveg þess virði og vert að hafa ekki sparað í vali á garni.
Íslenska ullin okkar er á góðu verði og er frábært hráefni og ekki versnar hún við að blanda saman við hana eðalþráðum á borð við mohair. Mohair hef ég notað um árabil með lopanum með góðum árangri, bæði fæ ég aðra áferð en einnig aðra litatóna.