Dæmigerður markaðsdagur í Pézenas þessum dásamlega markaðs, lista og antikbæ sem ég bý í nu um stundir. Hingað kom ég og vissi ekkert um þennan stað nema það sem ég fann á netinu en finnst sem ég hafi unnið í lóttóinu því þessir rúmu fjóru mánuðir hafa verið alveg ágætir þrátt fyrir Covid ferðatakmarkanir og innilokanir hefur sú staðreynd að vera ein hefur ekkert flækst fyrir mér. Kunni snemma þá list að vera nóg með sjálfri mér og alltaf nóg að gera við sköpun, hvort heldur til hugar eða handa.
Set hér inn allar myndirnar sem ég tók í morgun af hundum, fólki og markaðsvarningi, það var fleira fólk á ferli en oftast áður og verður örugglega þrengra á þingi því nær sumri við komumst.
Markaðurinn hefst snemma dags, ég hef ekki náð á byrjunina enn, en svo er allt búið þegar klukkan nálgast tvö og vá hvað menn eru fljótir að taka saman! Svo mæta bæjarstarfsmennirnir og þrífa á bílum, sópa og þvo!
Vona að þið hafið gaman af að skoða þessar myndir og endilega merkið þennan bæ á kortið og kíkið þangað einn daginn, það er alveg heimsóknarinnar virði.
yndis, virðist vera komið vor í loftið í Frakklandi!