Síðasliðin vetur hóf ég að kenna námskeið í prjónahönnun á netinu. Það tókst vel og var svo gaman að það er tímabært að fara af stað aftur.
Ég er ein af þeim sem hef verið síprjónandi frá unga aldri og þegar kom að formlegu námi í fatahönnun kom á daginn að ég hafði sérstöðu umfram aðra nemendur sem voru ekki svo lánsamir að hafa verið kennt að prjóna annað hvort í grunnskóla eða heima hjá sér eins og ég. Prjónakunnáttan gaf mér verkfæri sem ég hef nýtt mér allar götur síðan.
Alltaf hefur prjónið verið vettvangur minn til að fá útrás fyrir sköpunargleði og að sjá fullgerðan hlut/flík eftir mann sjálfan fyllir mann alltaf ánægju og stolti. Auk þess er prjónið frábær leið til að skapa sér eigin fatastíl, búa til eitthvað sem enginn annar á.
Ekki allir ætla sér að gefa út uppskriftir sem sækja námskeiðið hjá mér HANNAÐ MEÐ ÁSDÍSI, margir eru að gera peysur á sjálfa sig og sína nánustu og þá er að grípa tækifærið og læra hvernig best er að koma óskum t.d. unglingsins í fjölskyldunni um eitthvað sérstakt, í nothæfa flík.
Hugmyndir og koma þeim frá sér í fullgerðan hlut eða flík
En hvar fáum við hugmyndir og hvernig byrjar maður að skapa sitt eigið? Hvernig setjum við þetta niður á blað?
Ertu alltaf að leita að nýrri uppskrift en finnur ekki akkúrat það sem er í höfðinu á þér?
Þá er kominn tími á námskeið hjá mér!
Ég býð þér að kíkja í “verkfærakistuna” mína og ég kenni þér að byggja upp þína eigin.
Námskeiðið Hannað með Ásdísi er í 8 vikur (haustnámskeiðið stendur frá 8.okt til 3.des) og fer fram á netinu, í lokuðum hóp á facebook, og þú færð kennsluefnið í PDF skjölum til niðurhals og myndbönd til að horfa á. Einnig eru leynibónusar sem berast með gömlu góðu leiðinni í pósti.
En til hvers að eyða tíma og setja peninga í námskeið? Kanntu þetta ekki bara allt?
Hmn? Spurning hvort mín áratugareynsla sem menntaður hönnuður (BA gráða í Fashion Merchandising and Design frá bandarískum skóla The American College for the Applied Arts nám stundað í Los Angeles og London,útskrift vor 1986) hafi eitthvað fram að færa til að víkka sjóndeildarhringinn þinn og þar með þína peysuhönnun?
Veistu, já ég er fullviss að ég get hjálpað, kennt þér það sem hefur reynst vel hjá mér. Þær eru óteljandi peysurnar sem ég hef hannað (og prjónað) sem hafa verið seldar út um allan heim, oftast til einstaklinga en líka til verslana til að mynda í New York og Tokyo!
Hvað er kennt á námskeiðinu, hér eru nokkur atriði
Við förum yfir grunnþætti á borð við hugmyndasöfnun, skoðum strauma og tískustefnur, lítum líka til baka og lærum af því sem áður hefur verið gert í prjónahönnun.
Litir, samspil lita og áhrif þeirra vega þungt í allri hönnun hvort sem þú ert að gera húfu eða hanna bíl. Hvaða snið hentar hverjum, hvar eru áherslupunktar, hvert leitar augað?
Skiptir máli hvort þú ert að hanna á sjálfan þig eða til framleiðslu og sölu? Hvað er gert öðruvísi?
Garnið sem þú vilt prjóna úr, hvers vegna passar þetta garn betur en annað í tiltekið verkefni? Við fræðumst um garn og eiginleika náttúrulegra þráða og gerviþráða og samspil þar á milli.
Þú færð í hendur stærðartöflur sem notaðar eru í fataiðnaði og lærum að taka mál.
Hvernig reiknum við út hve margar lykkjur og hve marga sentimetra þarf til að úr verði flík?
Ég kenni ykkur það sem ég hef notað og virkar vel til að reikna út
Þú hefur aðgang að lokuðum hóp þar sem hægt er að spyrja spurninga og ég svara af bestu getu. Stundum myndast samtal milli okkar allra sem eru á námskeiðinu.
Skoðum nú nokkur ummæli frá þátttakendum á námskeiðum s.l. vetrar þegar spurt var Hvað stendur upp úr, hvað var best?
-Í upphafi skyldi endinn skoða og öll sú hugsun. – Stærðir og hlutföll. – Skýrar og góðar leiðbeiningar. – Að skilja hvernig uppskrift er skrifuð. – Sköpunarferlið. – Að uppgötva að ÉG gæti þetta með þeim verkfærum sem ég fékk. – Best var að opna augu mín fyrir öllum þessum óþrjótandi möguleikum og hvatningu til að hanna. – Útreikningar á stærðum. – Kennarinn frábær og þægileg í viðmóti og allt efni skipulega uppsett og skiljanlegt. Engar langlokur. – Hvatningin og einfaldleikinn. –
Láttu það eftir þér
Skráningablaðið er hérna í þessum link: https://forms.gle/3pnQbyea8XRFii3q6
Fylgstu með hérna á blogginu og á facebook síðu Black Sand því næstu daga munu koma fleiri lýsingar á innihaldi og fleiri ummæli þeirra sem setið hafa námskeið hjá mér. Það sem situr eftir hjá mér eru þau viðbrögð helst hvað innihaldið og framsetningin kom þátttakendum skemmtilega á óvart, því ég vissi alveg að efnið kæmi að gagni en já það var mjög ánægjulegt fyrir mig að ná “surprise elementinu” (hér meina ég “óvæntu áhrifunum”).
Þar til næst, kv. Ásdís
Sæl og blessuð. Mér finnst þetta námskeið mjög áhugavert. En mig langar að vita hvaða daga og tíma dags námskeiðið verður?
Kv. Svandís
Sæl,
Námskeiðið er á netinu, efni sett inn á sunnudögum/mánudögum, EF um beint streymi verður að ræða þá kynni ég það vel fyrirfram.
Við verðum s.s. í netheimum og samskiptin eru á facebook í lokuðum hóp, þar sem allir sem í hópnum/namskeiðinu eru geta spurt spurninga og við rætt málin.
Myndböndum er streymt á facebook og þar er aðgengi að PDF skjölum sem þáttakendur geta hlaðið niður í sínar tölvur og prentað út.
Þetta fyrirkomulag virkar vel og verður alveg jafn persónulegt og ef þáttakendur og ég, séum í sama rymi.
Þú sest við tölvuna og tekur þátt þegar þér hentar, aðgengi að efninu varir í nokkrar vikur umfram 8 vikurnar sem ég set inn efni. Þannig er nægur tími til að meðtaka og ég vakta síðuna og svara áfram eftir 8 vikurnar.
Vona að þú látir slag standa og verðir með!
Seinna í dag/kvöld set ég inn nýjan pistil með umsögnum og vitnisburði nokkurra sem sátu námskeiðin í fyrra vetur.
mbk
Ásdís og eigðu súper góðan sunnudag