Haustið er tími uppskeru, umbreytinga, undirbúnings og umvefjandi hlýju kertaljósa og notalegra kvöldstunda innandyra meðan haustlægðirnar þjóta framhjá gluggunum.
Skipt um ham
Rétt eins og náttúran skiptir um ham og litasinfonía náttúrunnar spilar sína fegurstu tóna þá erum við mannfólkið í óða önn að kaupa vetrarfötin, próna peysur og vettlinga. Við göngum frá uppskerunni söltum og sultum, vinnum slátur og daglega lífið fer í vetrargírinn með allt annarri dagskrá, nýtt skólaár, ný námskeið. Menningarlífið vaknar af sumardvala og félagarnir hittast og skiptast á sögum af sumri á fjöllum eða fjarlægum ströndum. Við skipuleggjum borgarferðirnar, saumaklúbbar hittast, kóræfingarnar, dansinn og öll námskeiðin sem við ætlum á, allt fer í gang.
Það er svo margt sem á sér upphaf á haustin sem gerir þann ársstíma engu minna sjarmerandi en vorið í mínum huga. Þegar náttúran hristir af sér sumargrænunni og klæðist í öllu litríkari skrúða er alveg jafngaman að njóta útivistar, fara í réttir eða göngutúra. Lauf trjánna eru einstaklega heillandi þegar þau falla til jarðar og eru mér endalaus uppspretta litasamspils í minni hönnun.
Ég er ekki alin upp á landsvæði þar sem trjágróður var ríkjandi þó fundust eitt og eitt tré í görðum heima í Eyjum fyrir gos en mínar fyrstu minningar tengdar trjágróðri eru frá því að ég var 5-6 ára í sumarfríi með fjölskyldunni norður í Vaglaskógi og ég man hvað mér fannst mikið til um öll þessi tré.
Haustferð
Mörgum árum seinna var ég á ferð frá Englandi til Þýskalands með bresku fyrirtæki og við fórum akandi frá London til Dover og þaðan yfir á meginlandið með ferju. Þetta var 1978 og ég var módel og fulltrúi þessa breska fyrirtækis á tískusýningum þetta „season“. Leiðinni var heitið á sölu/innkaupa sýningu í Dusseldorf þar sem fleiri bættust við í hópinn fyrir sýninguna.
Yfirmaðurinn í þessari ferð vildi frekar aka en fljúga og ég sá ekki eftir því að þiggja far í Rovernum frekar en að fljúga. Ekki man ég nákvæma leiðarlýsingu eftir það eða nákvæmlaga hvaða vegir voru eknir en maður lifandi hvað umhverfið var fallegt! Það var kominn október og í minningunni er leiðin ein ótrúleg litasinfónía endalaus skógur í haustlitum. Fyrir það fyrsta hafði ég aldrei séð svona skógivaxið landsvæði fyrr hvað þá svona mörg tré! Litadýrðin var yfirþyrmandi og minningin greypt í huga mér til þessa dags, vá!
Þingvellir
Í mörg ár hef ég haft það fyrir venju að heimsækja Þingvelli að hausti, litanna vegna. Þingvellir eru fallegir á öllum árstíðum en haustið er alveg sérstakt og einstakt að mínu mati. Þaðan er myndin sem ég notaði til að prenta á efni og úr varð löber og púði, mynstrið nefnist haust og er nú bara náttúran ósnortin greypt á mynd og þaðan á þetta dásemdarefni EcoCanvas (sjá lýsingu á efni við hverja vöru).
Að hafa huggulegt
Það er alltaf gaman að gera fallegt í kringum sig, raða upp á heimilinu og breyta til, stundum gerir nýr púði í sófann heilmikið fyrir stofuna. Stundum viljum við meira og málum eins og einn vegg eða kaupum nýjan sófa eða list á veggina. Oft er gaman að finna hlutum sem við eigum nýjan stað og þannig breyta heilmiklu, það er gaman að raða fallegum munum og grúppa saman líkum hlutum og finna þeim nýjan stað eða nýtt hlutverk.