Silkislæður
Frakkar eru konungur tískunnar hvar sem við drepum niður fæti í tískunni, fatnaði eða fylgihlutum. Silkislæður eru eitthvað svo franskt, þó silkið sé upprunnið í Kína þá eru frakkar snillingar þegar kemur að hönnun þessa nauðsynja fylgihlutar. Flestir hönnuðir hafa reynt sig við þetta form tjáningar sem silkislæður eru óneitanlega, langur klútur eða ferningur, er að finna hjá þekktustu tískuhúsunum sem og hjá þessum íslenska sem hér skrifar.
Hvenær og hvar?
Í stuttu máli þá eiga silkiklútar allsstaðar við, hvert sem tilefnið er, staðurinn eða stundin. Þegar kemur að efnisvali þá hefur silkið yfirburði, það er hægt að fá í mismunandi þyngdum og þar af leiðandi í mismunandi verðflokkum þó vissulega rjúki verðið upp ef slæðan er hönnuð af eða hjá þekktum hönnuði eða tískumerki.
Frá fermingu til ……
Sjálf var ég um fermingu þegar ég byrjaði að nota slæður. Það var þó ekki fyrr en um tvítugt að mér vara gefin fyrsta silkislæðan mín og ég á hana enn! Einnig á ég slæðu sem mér vara gefin í þrítugsafmælisgjöf, hún er frá Yves Saint Laurent franska tískurisanum. Hún er í mínum uppáhaldslitum og því verið mikið notuð. Fyrsta slæðan er beige og brúntóna og hafa þeir litir aldrei átt sérstaklega upp á pallborðið hjá mér og þar af leiðandi lítið notuð. Hún er frá bresku merki sem er ekki lengur starfrækt og hét Cojana. Hún var gjöf til mín á þeim tíma sem ég vann fyrir þá og er því vel varðveitt. Þannig að það er aldrei of snemmt að byrja að safna silkislæðum né of seint. Því eins og allt sem er vel gert og fallegt er þess virði að safna og njóta árum saman.
Frægu leikkonurnar elska silkislæður
Á netinu má finna aragrúa af myndum af þekktum konum með silkislæður um háls, herðar og hár. Ég fann hér nokkrar sem gaman er að skoða og andlitin þekkja flestir.
Black Sand
Silkislæðurnar sem nú eru í boði hjá Black Sand eru í hinum klassiska ferning sem er 90 x 90 cm og ofnar í vefnaði sem heitir twill. Hermes tískurisinn sem er án efa konungur þeirra sem framleiða silkislæður nota einmitt þannig vefnað og þessi stærð er oft kölluð franska stærðin. Það er síðan hægt að brjóta ferninginn á ýmsa vegu eftir því hver flíkin er sem við erum í í það og það skiptið. Hér eru nokkrar tillögur….