Þetta fallega lag eftir Magnús Eiríksson í flutningi Vilhjálms Vilhjálmssonar, kom upp í hugann þegar ég flétti í gegnum myndir sem ég hef tekið undanfarið, því það er margt sem grípur gests augað. Í vetur sýndi ég ykkur myndir af fjölbreyttum útidyrahurðum hér í Pézenas sjá hér https://blacksand.is/andstaedurnar-heilla-og-kallast-a/ og núna kíkti ég á póstkassa, ef umgengni lýsir innri manni hvað segja póstkassarnir um íbúana? Sumir fá meira að segja þak yfir sig 🙂
Hvernig þessi kona kona fær hugmyndir og hvað það er sem vekur henni forvitni er mér hulin ráðgáta en víst er að það er margt skrítið ef á það er litið …………..
Vínræktarhéraðið mitt
Héraðið sem Pézenas tilheyrir heitir Languedoc Roussillon og er stærsta vínræktarhérað Frakklands, þó hafði ég aldrei heyrt minnst á vín héðan áður en ég kom hingað. Reyndar var skipt um nafn á héraðinu 2016 og heitir það nú Occitane hvers vegna er alltof mikil steypa fyrir mig að fara út í en fyrra nafnið heldur velli nema hjá hinu opinbera skilst mér. Maður þekkir vín kennd við Bordaux, Búrgundy og Alsac að ekki sé minnst á Champagne samt eru vín héðan meira en 1 af hverjum 3 vínum framleiddum í Frakklandi. Hér er vínrækt risastór atvinnuvegur og telst vera um 5% heimsframleiðslunnar og það er gaman að geta þess að Languedoc er stærsti framleiðandi lífrænt ræktaðra vína í Frakklandi.
Frá heimili mínu er stutt á næstu vínekru, þær eru fjölmargar í göngufjarlægð, og set ég hér inn nokkrar myndir af þeim frá vetri til sumars.
Rétt eins og í öllum landbúnaði þá á vínframleiðslan allt undir því að tíðin sé góð og hið sólríka og vindasama Languedoc er kjörið fyrir vínframleiðslu. Landsvæðið sem vínekrurnar þekja telst hið stærsta samfellda í heiminum í hekturum talið. En það gekk ekki vel hér í vor, um páskana var yndislegt veður og mars var hlýr, maður var viss um að vorið væri komið og sumarið handan við hornið en í vikunni eftir páska var næturfrost og ekki bara hér á mínu svæði heldur víðast hvar á vínekrum Frakklands. Ræktendur kveiktu kyndla um allar vínekrur til að halda hita að vínviðnum en það fór samt illa, frostbitinn vínviður var víða eftir þessa nótt. En einnig voru ávaxtaré, eins og epli og aprikósur, sem urðu illa úti og er tjónið allt talið í billjónum, þannig að þetta var mikið áfall fyrir þjóðarbúið. Æðstu ráðamenn létu sjá sig hjá bændum og ræktendum og hétu beinum fjárhagsstuðningi sem og skattaívilnun og vonandi hjálpar það eitthvað. Þetta var þriðja áfallið fyrir víniðnaðinn hér s.l. ár, fyrst er til að nefna Covid og lokun öldurhúsa og veitingastaða, svo lagði Trump innflutningstolla á frönsk vín svo kom frostið, við skulum vona að allt sé þá þrennt er! Hér er linkur á eina af fjölmörgum síðunum sem fjölluðu um þetta kuldakast https://www.thedrinksbusiness.com/2021/04/french-vineyards-hit-by-worst-frost-in-decades/
En vín er gott í hófi og ég nýt þess að fá mér vínglas með góðum mat, verðið er annað en við eigum að venjast á Íslandi og félitlir ferðalangar hafa jafnvel frekar efni á vínflösku en gosflösku en þá erum við ekkert að spá í gæðin.
Að heimsækja vínekrur og fá að smakka er vinsælt hjá ferðamönnum svo þegar ég fékk loks heimsókn þá var skundað af stað. Seigneurie de Peyrat varð fyrir valinu og þangað er ekki nema klukkustunda labb en í 34 gráðu hita var það slegið út af borðinu og hringt á leigubíl. En þá kom babb í bátinn, leigubílar eru ekki á hverju strái í smábæ og kom á daginn að við hefðum betur bókað far fram og til baka með amk. dags fyrirvara. Svo þegar það var ljóst voru það vonsviknir ferðalangar sem trítluðu af stað í bæinn og ferð á veitingastað átti að vera sárabót. Í þann mund sem við löbbuðum af stað bar að vini mína á neðri hæðinni, eiganda hússins og verkstæðisins hér niðri og ég ákvað að rabba við hann og tuða um skort á leigubílum og hvort hann vissi meira. Svo var ekki „en hvert er ferðinni heitið?“ Ég sagði honum það og eftir að hafa skoðað kortið og spáð í vegalengdir þá bauðst hann til að keyra okkur því svo vel vildi til að bíllinn hennar mömmu hans var á bílastæðinu! Eigandinn er sonurinn í fjölskyldunni og þó sá gamli hafi verið kynntur fyrir mér sem eigandinn af fasteignasalanum þá er sonurinn alveg með á hreinu að hann ER eigandinn og hann er sá sem hefur verið mjög hjálplegur við mig, ja bara eins og sonurinn sem ég á ekki 😉 Við þrjú, dóttir mín, tengdasonur og ég þáðum farið og vorum komin á leiðarenda eftir ca. 7-8 mín hér er linkur á síðuna þeirra. https://www.depeyrat.com/
Það var mjög gaman að vera þarna í það sem þeir kalla Picue-nique Chic en það var vínsmökkun og hádegissnarl með, þetta er aldagömul vínekra og þó hitinn hafi verið of mikill fyrir göngu um vínekruna þá röltum við aðeins út fyrir húsagarðinn og nutum okkar í afslöppuðu umhverfi þar sem ekkert var af umhverfishljóðum nema þessi náttúrulegu. Þær voru tvær sem þjónuðu okkur og var önnur ung ensk í sumarstarfi, þær sögðu okkur að viðskiptin væru mun rólegri en ella þar sem það vantaði alla Breta á svæðið eftir Brexit og endalausar ferðatakmarkanir og núna undanfarið kergju í samskiptum þessara vinaþjóða. Okkur var hjálpað að fá leigubíl til baka og auðvitað var keypt vín til að taka með sér og ein flaska fyrir unga hjálpsama eigandann.
Viðskiptatækifæri
Það eru svo margir sjálfstæðir framleiðendur í víniðnaði og margir eru litlir, þetta fyrirtæki rak á fjörur mínar spölkorn frá heimili mínu. Átöppunarverksmiðja á hjólum, þvílík snild! Myndirnar segja söguna en þessi vínkjallari leiddi vínið úr störum tönkum í tankana í bílnum sem svo vann þetta með hjálp fárra en öruggra handa, að tappa á og líma miða svo allt sett á brettin og aftur í vínkjallarann. Þarna hef ég oft labbað framhjá og hélt nú bara að þetta væri bílskúr! En ef einhver vill skoða þessa hugmynd þá er þetta heimasíða þessa rúllandi átöppunarverksmiðju https://www.embouteillageservices.fr/
Dýrin mín stór og smá
Dýr eru alltaf skemmtilegt myndaefni og sýni ég ykkur hérna nokkrar myndir af þeim sem hafa verið á vegi mínum undanfarið, ferfættir, fiðraðir eða alveg steindauðir!
Alltaf jafngaman að lesa pistalana frá þér. Það er ekki bara hvað þú ert að skrifa um heldur eiunnig hvernig þú skrifa um umhverfið og lífið. Á milli línanna má lesa að hér er kona sem er að vakna til lífsins og læra að njóta þess sem lífið færir henni frá degi til dags. Þú ert best elsku Ásdís