Fyrir bæ sem telur undir 9.000 íbúa þá er ansi litríkt lista og verslunarlíf hér í Pézenas, hann er kallur bær lista og sögu enda státar hann af um 30 sögulega mikilvægum aldagömlum byggingum. Vikulega er markaður á aðalgötunni í miðbænum, eitthvað sem hefur verið gert öldum saman enda liggur staðsetning bæjarins vel við umferð í margar áttir, grænmetisræktendur, kjötkaupmenn og allskonar kaupmenn stilla upp borðum og tjöldum, alltaf líf og fjör og gaman að geta verslað beint frá bónda. https://blacksand.is/laugardagur-i-februar-2021/ í þessum pistli eru margar myndir frá laugardagsmarkaðnum, njótið.
Annar endir á langri götu Bara allt komið út Misspennandi dót Gamalt og ryðgað, einhverjir sjá fegurð í því Skambyssur? Nei takk ekki fyrir mig Vantar náttborð, kannski bara
Tvisvar á ári er haldinn antik markaður og þá dugir ekkert minna en að loka helstu umferðargötunni og þar á nokkrum kílómetrum má sjá fortíðina færða á borð.
Þessar gínur! Fallegir safngripir fyrir golfara Bláa kannan eða viltu græna? Spilakassi! Væri ekki verra ef einhver splaði á fiðluna á meðan ég laga stólana 5kg af hakki takk Wedgewood Pant ekki leita í þessari kommóðu Það væru ekki margar fullorðnar konur sem myndu komast í þennan Ef vel er rýnt sjást nokkrar kynslóðir as símatækjum Dúkkuvagnar Fyrir hefðardömur
Hræbillegar gamlar körfur og nothæfar líka Gamlar dúkkur sem einusinni kúrðu hjá heimasætum Þessi skemmti vegfarendum Listilega gerðar hurðir
Markaðurinn er haldinn í byrjun maí og byrjun október en Covid faraldurinn hefur riðlað þessum tímasetningum, þó laugardagsmarkaðurinn hafi alltaf haldið sér þ.e.a.s. matvöruhlutinn.
Eins og sjá má á sumum myndanna er margt eigulegt fyrir safnara, að ekki sé minnst á þá sem vilja gera upp gamla hluti.
Sunnudagurinn 13.júní rann upp sólríkur og fagur með hæsta hitastig sumarsins til þessa, heilar 37 gráður svo það var mikilvægt að taka daginn snemma, setja upp stráhatt og skunda af stað. Ekki ætla ég að þykjast sérfæðingur um eldri hluti, en áhugann hef ég. Fyrir margt löngu bjó ég í London steinsnar frá hinum þekkta Portobello Road markaði, flesta laugardaga kíkti maður við og skoðaði frekar áhugalaus allt þetta gamla drasl með vinunum. Í þá daga vildi ég nú bara nýtt og hönnun átti þegar hug minn og hjarta þessi fyrstu ár á þrítugsaldrinum. En mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en trúlega var forvitnisfræjum sáð því smátt og smátt fór ég að horfa á gamla hluti með sögugleraugum. Í dag er það sagan sem hluturinn segir sem heillar mig auk þess að sjálfsögðu handbragð og hönnun. https://blacksand.is/antikbaerinn-minn-pezenas/ í þessum pistli má skoða antík verslanirnar m.a.
þetta bakarí var komið út á miðja götu, eitthvað sem þau gera ekki í hverri viku
Njótið þess að skoða myndirnar, þær segja söguna sjálfar.
Takk Ásdís. Það er mjög gaman að fá innsýn inn í þennan heim sem þú býrð í núna. Ég get varla sagt að ég hafi stigið niður fæti í Frakkland. Reyndar einhvers staðar hátt uppi í Ölpunum, á landamærum Ítalíu og Frakklands. Svo ég á mikið eftir að skoða og upplifa, sé ég. Knús og kveðjur, Tóta
Takk kærlega fyrir þetta, Àsdìs…gaman ađ lesa og skođa myndirnar.
Það er svo gaman að fá pistlana frá þér. Þú í 37 stiga hita og ég að koma frá Mývatni þar sem snjóaði , og það mikið að það varð að skafa af bílnum. Þegar ég les pistlana frá þér vakna upp ýmsar minningar frá því þegar þú sagðir mér frá dvöl þinni í London. Þú ert mikil heimsdama og nú bætir þú Frakklandi á kortið hjá þér. Hlakka til næsta upplifunar í gegnum þína góðu pistla.
Sit hér í norðan roki og tveggja stiga hita á tjaldstæðinu á Hvammstanga og skoða þessar sólríku myndir. Svei mér ef mér hlýnar ekki bara örlítið 🌞. Takk fyrir skemmtilegan pistil og myndir elsku mágkona.
Takk Ásdís fyrir að kynna þennan skemmtilega antikmarkað. Ég er alveg forfallin antikmarkað manneskja og hef mikið verið á skandinavískum mörkuðum og hef fundið margt spennandi. Ásdís mín ég vona að allt gott sé að frétta af þér og þú komir fljótlega og við hollsysturnar getum hitt þig. Bestu kveðjur HF