Hvað kveikir hugmynd?
Hönnuðir eru oft spurðir að því hvar þeir fengu þessa eða hina hugmynd að verki, hvað kveikir í hönnuði svo að segja.
Í mínu tilviki er það ekkert eitt sem leiðir mig áfram nema ef til vill forvitni, að sjá hvað er fyrir næsta horn, að sjá hvort eitthvað virkar eða hvort hægt sé að gera sama hlutinn á fleiri en eina vegu.
Hughrif, stemning, fólk, tónlist, fegurð og ekki síst náttúran kveikir í mér og sé ég oft munstur úr ólíklegustu hlutum. Oftar en ekki líkist endanlega útkoman upphafshugsuninni að svo litlu leiti að fáir ef nokkur sér tengslin nema hönnuður.
Hérna gefur að líta hugmynd sem varð að mynstri í prjóni hjá mér.
Haustið er litasinfonía af bestu gerð, ekki síst þegar gróður á í hlut. Á þessum myndum sést hvar hughrifin kviknuðu, síminn tekinn upp og smellt af, næsta skref var síðan að finna band litað í tónum líkustum þessum. Íslenska ullin varð fyrir valinu enda hráefni sem ég þekki vel.
Afraksturinn varð að vesti sem verður í uppskriftabókinni HUGHRIF sem kemur út eftir nokkrar vikur.
Vestið sem varð til eftir hughrif frá þessari girðingu við göngustíg í mínu nærumhverfi í Pézenas.