Taktu ekki mín orð fyrir því hvað þátttakendur höfðu að segja um námskeiðið s.l. vetur.
Set hér inn vitnisburð nokkurra kvenna sem voru hæstánægðar með námskeiðið.
Hannað með Ásdísi
Eygló Jónasdóttir:
Algjörlega frábært, færð yfirsýn yfir hvað á að hugsa útí, prjónfesta skiptir lykilmáli í byrjun og muna að það getur verið öðruvísi með mismunandi mynstri hvort sem það er 2 litir eða structure. Færð allskonar frábærar formúlur til að reikna allt. Æðislegt í alla staði. Frábær leið bæði til að gera bara fyrir sjálfa þig eða til að útbúa uppskriftir fyrir aðra.
Rannveig:
Einstaklega vandað og skýrt efni, útskýringar hennar góðar og skiljanlegar. Það sem ég fékk út úr þessu námskeiði er góður grunnur sem mun nýtast vel.
Anna Steinunn Þengilsdóttir:
Skemmtilegt og gefandi námskeið sem allir unnendur hönnunar og prjóna ættu að nýta sér. Skýrt og skilmerkilega er gengið í efnivið námskeiðsins og uppsetning þess þægileg og skiljanleg. Farið er vel í hver markmið hvers hluta er og hvert við viljum vera komin þegar næsti hluti kemur. Bent er á ýmsar aðferðir og leiðir td við val á litum, hugmyndum og mynstri, sem mér persónlega fannst afar skemmtileg nálgun.
Ég mæli með Ásdísi, sem mér finnst afar viðkunnaleg og skemmtileg og hefur mikla reynslu á sviði hönnunar.
Námskeið vetrarins hefst í næstu viku!
Guðrún María Guðmundsdóttir:
Ég er búin að segja nokkuð mörgum frá þessu frábæra námskeiði sem ég datt á. Hvernig á að reikna út stærðir og hlutföll stendur uppúr hjá mér. Svo þykir mér þú með þægilega nærveru og gott að hlusta á þig.
Perla Hafsteinsdóttir:
Að þu takir verkefnið alvarlega og leyfir samtimis, eftir þörfum, sprell og skemmtilegheit.
Ekki missa af skemmtilegu námskeiði
Stefanía Ástvaldsdóttir:
Á þessu námskeiði lærði ég hvað grunnvinnan er mikilvæg. Prjónafestuprufan er algjört lykilatriði. Ég hef ekki verið að gera prjónafestuprufur. Ég hef tekið mál af þeim sem ég ætla að prjóna á og stuðst við þá stærð sem gefin er upp fyrir þá flík sem ég er að fara að gera. Það hefur sloppið hingað til. Ef ég ætla að skrifa uppskrift þá verður að vanda til verksins. Sérstaklega ef aðrir eiga að skilja uppskriftina eða mig langar til að prjóna aðra eins flík. Þá er mjög mikilvægt að hafa skrifað niður hvað ég var að gera. Hvernig flík ég gerði. Hvaða garn ég notaði, finna prjónafestuprufu, reikna út lykkjufjölda, lengdina, hvernig munstur ég gerði og hvernig úrtaku ég notaði. Svo má ekki gleyma að taka mynd af flíkinni.
Þetta er búið að vera frábært námskeið takk fyrir mig.
Edda Ástvalds:
Hvetjandi til að prjóna persónulega flík.
Guðveig Jóna Hilmarsdóttir:
Námskeiðið gefur þér öryggi og kunnáttu við að hanna þina eigin prjónaflík.
Rakel Ósk Gunnarsdóttir:
Ég mæli 100% með þessu námskeiði😊 það svaraði öllum þeim spurningum sem eg hef verið að velta fyrir mer, t.d hvað ermi á að vera löng miðað við bol, hvernig maður reiknar út hvað berustykkið á að vera langt, hvenær úrtakan er og þ.fl. Fannst líka áhugavert þegar þu bentir okkur á að líta í kringum okkur á heimilinu okkar og pæla í litunum, þegar eg gerði það þá fattaði eg að eg klæðist einmitt þessum litum sem ég skreyti heimilið mitt með.
Kristín G:
Ég myndi útskýra fyrir vinkonu að það væri nauðsynlegt að fara á þetta námskeið, sér í lagi ef hún/hann/þau hefðu áhuga á að hanna prjóna uppskriftir þar sem námskeiðið útskýrir mjög vel alla útreikninga og uppsetningu prjóna uppskrifta.
Skoðaðu námskeiðslýsingu í fyrri pistli
Hjördís:
Frábært námskeið með góðum útskýringum á öllu ferlinu í að búa til uppskrift af flík sem hentar þér eða öðrum. Mikið efni á stuttum tíma og mikilvægt að skrifa niður og niðurhala skjölum svo hægt sé að glugga í aftur og aftur.
Hildur Eysteinsdóttir:
Skipulagið gott – góð fagmennska.
Helga Þórðardóttir:
Mér fannst þetta stutta námskeið frábært í alla staði. Farið vel og skipulega yfir allt sem máli skiptir við að hanna prjónaflík. Á örugglega eftir að nota mér það og hanna eitthvað.
Jara Natalía Florence Björnsdóttir:
Mér fannst skjölin sem þú settir inn mjög hjálpleg, þ.e. stærðar skjölin. Mér fannst hjálpleg að læra hvernig ég reikna út stærðir á peysum, Mér fannst myndböndin um hugmyndavinnuna hjálpleg og svo man ég ekki meira en ég komst heldur ekki í gegnum allt efnið, búið að vera mikið að gera í skólanum og vinnunni.
María Björk J.:
Mér þótti leiðbeingar í samband við útreikninga góðar og hvað er gott að nota til að teikna upp munstur.
Sumir koma á námskeið til að verða betri prjónarar fyrir sjálfa sig, aðrir stefna á að gefa út uppskriftir. Hvað vilt þú?
Björg Ingþórsdóttir:
Það var mér dýrmætt að fá í hendur verkfæri til útreiknings á uppskriftum – formúlur til að vinna eftir og uppskrift af skipulagi á hugmyndabankann
Að fá innsýn í vinnulag hönnuðar er að sama skapi einstakt. Ásdís setur efni vel fram og hvetur til verkefna sem blundað í huganum lengi. Takk kærlega fyrir mig.
Takk kærlega fyrir mig!
Þetta eru nokkur ummæli sem ég hef fengið. Það er mér svo kært að fá jákvæða umfjöllun enda minn tilgangur að gefa af mér og hjálpa ykkur til að bæta fleiri verkfærum í ykkar verkfærakistu og auka sjóndeildarhringinn. Við lærum af öðrum en öpum ekki eftir!
Látum okkar sýn ráða för, ég hér til aðstoðar.
kv,
Ásdís