Dæmigerður markaðsdagur í Pézenas þessum dásamlega markaðs, lista og antikbæ sem ég bý í nu um stundir. Hingað kom ég og vissi ekkert um þennan stað nema það sem ég fann á netinu en finnst sem ég hafi unnið í lóttóinu því þessir rúmu fjóru mánuðir hafa verið alveg ágætir þrátt fyrir Covid ferðatakmarkanir og…
Sunnudagsrölt á Aðventunni
Jólin eru hátíð ljóss og friðar og þó flest sé með öðrum hætti í aðdraganda jólanna þetta árið hjá velflestum þá er er engin skortur á ljósum og vonandi friði í hjarta hjá sem flestum okkar. Breyttir tímar Í nýju heimkynnunum mínum, Pézenas í suður Frakklandi, hefur undirbúningur verið með lágstemmdari hætti en venjan er…
Góðgætið í Pézenas
Verandi í Frakklandi á Aðventunni þýðir bara eitt í mínum bókum, að smakka allt góðgætið sem ég kemst yfir! Kóka Kóla eða sætabrauð? Ég setti mér það markmið að smakka eitthvað nýtt (reyndar er allt nýtt fyrir mér enn sem komið er) í hverri viku og er það síður en svo erfitt, þó ég sé…
Franskan er ekkert grín!
Loksins kveikt á ! Ég var búin að taka eftir starfsmönnum bæjarins að setja upp jólaskreytingar en hvenær ætluð þeir eiginlega að kveikja? Það gerðist ekki fyrr en aðventan gekk í garð svo það var virkilega hátíðlegt um að litast þegar laugardagurinn 28. nóvember rann upp og höftum létt af borgurum þessa lands að hluta…
Andstæðurnar heilla og kallast á
Gróðurinn og steinsteypan Á göngu minni um suðræna bæinn minn Pézenas sé ég miklar andstæður ekki bara gamalt og nýtt sem kallast á heldur líka gróðurinn sem lætur ekki að stjórn og vex yfir veggi og upp úr gangstéttum. Það eru ekki bara hlaðnar ójafnar, gangstéttir sem þarf að vara sig á heldur líka ójöfnurnar…
Antikbærinn minn Pézenas
Fyrir gamla sál eins og mig er ansi margt sem heillar hér á nýjum slóðum, bæjarstæðið er ævafornt, lega þess er mikilvæg tenging milli stærri kjarna og hér voru menn að fara um löngu áður en Rómverjar lögðu vegi. Byggingar hér í miðbænum eru margar fleiri hundruð ára gamlar sem er alltaf forvitnilegt fyrir Íslending…
Pollýanna eða Palli?
Nýju heimkynnin eru bæði framandi og gamalkunnug, ég er gestur og verð það sjálfsagt lengi enn. Samt er eins og ég eigi að vera akkúrat hérna, núna, það fer vel um mig og yndislegt að geta verið úti við án þess að verða kalt og ekki renn ég í hálku! Ójafnar hlaðnar stéttirnar geta þó…
Góður dagur
Það rigndi smá í morgun, svona rétt nóg til að hreinsa loftið en ekki hundaskítinn á gangstéttunum! Þegar ég leit út um gluggann sá ég að bréfberinn var að bera út póstinn, í þetta sinn vel gallaður og á mótorhjóli og þar sem ég hafði pantað mér enskt tímarit leyfði ég mér að vona að…
Að láta sér líða vel alla daga.
Að vera staddur í öðru landi en heimalandinu í þessum Covid-faraldri er í raun ekkert öðruvísi en heima á landinu bláa – ég er orðin sextug, ég er með astma á erfiðu stigi, háþrýsting osf. Svo ég þarf að passa mig hvar sem ég er stödd. Það þýðir samt ekki að ég frekar en allir…
Pézenas, bærinn minn?
Það er jafn fjölbreytt veðrið hér eins og heima, skiptast á skin og skúrir og ósköp heimilislegt fyrir Eyjastelpuna hvað hér er vindasamt! En til allrar hamingju er hitstigið öllu hærra. Riddaramennskan ekki alveg dauð Ég kom hingað að kvöldi, í myrkri og til að auðvelda mér lífið tók ég leigubíl frá lestarstöðinni í Béziers…