Haustið er dásamlegt tímabil nýs upphafs og stórkostlegs sjónarspils lita í náttúrunni.
Nýtt upphaf haustsins felur í sér að þjóðfélagið fer í startholurnar fyrir langan vetur eftir, vonandi, líflegt sumar fyllt með ferðalögum, sumarfríi, löngum dögum og vonandi endurhleðslu orku fyrir komandi vetur. Skólar og atvinnulíf fara í hefðbundinn farveg og við tekur félagslíf, þykkari fatnaður, dimm kvöld með kertaljósum og margir fara á námskeið og taka upp ný áhugamál.
Miklar breytingar eru á mínum högum þetta haustið þar sem ég fluttist búferlum til Svíþjóðar eftir 3 ára dvöl í suður Frakklandi, fram undan er vetur með óskrifað blað nýrra upplifana og uppgötvana.
Eftir 3 ár í Pézenas, litla bænum sem reyndist mér sem græðandi áburður á beyglaða sál mína í kjölfar áfalla og heilsubrests, er ég tilbúin að herja á nýjar slóðir og láta nýja drauma rætast.
Uppsala í Svíþjóð verður heimili mitt eins lengi og mig langar til, hingað kom ég til að vera nær kjarnafjölskyldu minni ein dóttir mín gerði Uppsala að sinni heimahöfn fyrir nokkrum árum og er í óða önn að koma upp fjölskyldu með sínum sænska manni og amman ég, get vonandi komið að gagni.
Héðan er síðan eitt tiltölulega stutt flug til hinna dætranna heima á Íslandi svo styttra, þægilegra og ódýrara verður að ferðast á milli og styrkja böndin við fjölskyldu og kæra vini.
Námskeiðshald
Síðastliðin vetur hóf ég námskeiðshald í gegnum netið eftir að hafa setið nokkra vikna (hörku) námskeið til að læra að setja upp námskeið á netinu (SOMBA Kickstart hjá Sigrun.com) og fór af stað með námskeið sem ber yfirskriftina HANNAÐ MEÐ ÁSDÍSI.
Núna er komin tími á að bjóða það aftur fyrir áhugasama. Um er að ræða 8 vikna námskeið þar sem farið er í að hanna prjónaflík. Allt frá hugmyndaöflun til útgefinna uppskrifta. Við nálgumst viðfangsefnið með því m.a. að skoða söguna, tískuna og spáum í hvað kemur næst. Við lærum um liti og litasamspil, hvernig við leitum hugmynda og komum okkur upp gagnagrunni, hvernig við reiknum út…………… og svo fjöldamargt skemmtilegt því hönnun sem og öll sköpun er skemmtilegt ferli og þegar niðurstaðan er eigin tilbúinn hlutur fyllist maður gleði og stolti sem fylgir manni og hvetur til áframhaldandi góðra verka.
Á næstu dögum set ég upp skráninguna og kynni, þessa dagana er ég enn að bíða eftir nettengingu á nýja heimilið og heimilið enn í kössum en ég bretti upp ermar að íslenskum sið og verð brátt komin á kaf í málin og tilbúin að kenna áhugasömum.
Ef þú vilt tryggja þér sæti áður, sendu mér línu á studio@blacksand.is
7 punktar sem ég styðst við
Sjá „7 fyrstu skrefin að hanna handprjónaða flík“ https://blacksand.is/wp-content/uploads/2023/09/7-skref-ad-hanna-handprjonaflik.docx
Alltaf eitthvað meira ……………..
Svo er eitt verkefni sem ég er búin að vera að vinna að s.l. 2-3 ár og afraksturinn verður brátt opinberaður, meira um það síðar, fylgstu með.
Með bestu kveðjum og von um góðan vetur beggja vegna hafs,
ykkar
Ásdís Loftsdóttir
Hvaða tímasetningar eru á námskeiðinu og hvað kostar námskeiðið.
Sæl,
afsakaðu að ég hafi ekki svarað strax.
Núna er 1.sta vikan og við verðum að í 8 vikur eða fram í desember. Ég set inn efni í byrjun vikunnar og fólk hefur sína hentisemi með hvernig þau vinna úr því og hvenær.
Verðið er 119.700 og eru nokkrir bónusar innifaldir (að verðmætu um 39.000 ef þeir væru seldir sér). ÞÚ HEFUR ENN MÖGULEIKA Á AÐ VERA MEÐ!
Skoðaðu betur námskeiðslýsingu og skráningarformið sem er hér í pistli á síðunni.
kv. Ásdís