Hvers vegna þá ekki að sökkva sér aðeins í prjónaskapinn eins og þú hefur aldrei gert áður?
Hvað finnst þér skemmtilegt að gera? Áttu hobby sem þig langar að taka lengra?
Ef þú svarið þitt er = Að prjóna! Þá erum við á sömu bylgjulengd 😊
Ég elska að prjóna, mín ástríða reyndar, ég tek prjónana með mér um allt. Sest niður, geng um og þegar ég lit upp frá prjónaskapnum þá sé ég alltaf eitthvað sem kveikir hugmynd að næstu flík.
Já, sköpunin fer aldrei í frí, stundum sit ég bara og geri ekki neitt! Þá heldur fólk að ég sé ekkert að gera en það er langt í frá, því í höfðinu er allt á fullu! Ég hugsa mjög sjónrænt og hef oft hannað allt í huganum áður en kemur að útfærslu. Stundum tek ég garndokku og byrja á að þreifa mig áfram, hvað segir þetta garn mér………..? Já, ég er svolítið skrítin I know!
Ég er með háskólagráðu í fatahönnun og lærði ýmsar praktískar aðferðir til að koma hugsunum í form en alltaf kem ég aftur að upprunanum. Uppgötvuninni þegar mamma kenndi mér að prjóna um 6 ára aldurinn og galdurinn sem slétt og brugðið var VÁ! Og er enn sem galdur öllum þessum árum síðar. Og það er einmitt þessi galdur (lesist galdur=tilfinning) sem ég vonast til að miðla til þín.
Vissirðu að til að vera flínkur að prjóna er bara að æfa sig?
Þú þarft þarft ekki að vera flínkasti prjónarinn til að laga uppskriftir sem þú uppgötvar að passa ekki!
Þú þarft ekki að vera flínkasti prjónarinn til að gera uppskrift frá grunni eftir hugmynd sem þú fékkst!
En þú þarft að hafa forvitni, áhuga, löngun og að skrá þig á námskeið sem opnar augu þín fyrir óendalegum möguleikum sem bíða þín með prjónum og garni.
Ég býð námskeið með áherslu á hönnunina á prjónaflíkum, þátttakendur koma á mámskeið með allskonar bakgrunn í prjónaskap og efnið nýtist öllum ef þeir mæta með snefil af áhuga þ.e. 😊
EF ÞÚ VILT KOMA MEÐ MÉR Á NÁMSKEIÐ, ÞÁ ER LÝSING, VERÐ OG SKRÁNING HÉR, smelltu á þennann hlekk https://forms.gle/4SoS4AshGp94zVwr9
Hér eru örfá ummæli frá þátttakendum:
“Viðurkenni að ég hef lítið prjónað síðastliðin ár og alls ekkert á mig sjálfa – helst á börn og annað ungviði. Þessi grunnatriði með málin, formun flíkur, prósentuhlutföllinn hafa opnað nýja vídd fyrir mér. Hvernig við náum fram okkar sérstöku. Hreinlega opna augun fyrir sköpun.“
Sagði Helga
„Sem reynd prjónakona fannst mér mjög gagnlegt að fá þessi grunn atriði í hönnun, hvernig peysa er mótuð og hvert maður dregur augað til að nýta styrk þess sem klæðist flíkinni og hvernig hlutföll í flík eru fundin.“
Sagði Sigrún
Og fleiri ummæli eru á vefsíðunni https://blacksand.is/hvad-sogdu-thaer/